Langar þig til að halda jól og áramót á Phuket?
Ferðin.is getur boðið frábæra pakkaferð til Phuket jól og áramót 2013 – 14.
Engin ákveðin dagsetning ferðatímabil frá 16. des. 2013 til 09. janúar 2014 hægt að stytta og lengja ferðina, vera á sama stað allan tíman með meiru. Fyrstir koma fyrstir fá, takmarkað sætaframboð.
Náttúran á suður Thailand er bæði stórkostleg og fjölbreytt, sem hefur gert það að verkum að landið er upplagður ferðaáfangastaður fyrir fólk víðs vegar að úr heiminum. Phuket er stærsta eyja Thailands, og vinælasti áfangastaður fyrir skaninavíubúa. Á Phuket eru kílómetra langar hvítar sandstrendur, mikið úrval af veitinga- og verslunarstöðum auk þess sem boðið er upp á margar áhugaverðar skoðunarferðir. Khao Sok er þjóðgarður með gróskumiklum regnskógi, fossum, kalksteins klettum , ám og vötnum. Í þjóðgarðinum er einnig mikið og fjölskrúðugt dýra- og plöntulíf og þar er að sjá meira en 100 mismunandi orkídeur. Að sigla ígegnum frumskóginn er mikilfengleg upplifun, sem og að fara á fílabak. Hér fær maður innsýn í bæði dýra- og plöntulíf svæðisins. Krabi sem er þekkt fyrir stóra og fallega límsteins kletta og fallegar sandstrendur. Náttúran á landsbyggðinni á Krabi er talin af mörgum vera sú fallegasta og sérkennilega á Thailandi.
Veðrið
Aðal ferðamannatímabil í suður Thailandi er frá nóvember til apríl ár hvert, þá rignir lítið, lítill vindur og sjórinn því með rólegra móti. Frá maí til október getur komið úrhellis rigning, sem þó oftast eru stuttir skúrir og sérstaklega seinnipart dags og á kvöldin. Veðrið er ekki eins “stöðugt” á þessum árstíma og rakastigið hátt. En fyrir utan háferðamannatímann er mun rólegra, færri ferðamenn og hótelverðin eru lág. Ef maður vill slappa af í rólegu umhverfi og setur ekki fyrir sig þó svo ekki séu eins miklir afþreyingarmöguleikar og á háannatímanum, þá er þetta staðurinn. Phuket, Khao Lak og Krabi eru þeir staðir sem þú getur heimsótt allt árið, en aðrar minni eyjar eru lokaðar hluta af árinu og erfitt að komast til þeirra.
Besti tími: November – April
Phuket
Phuket, stærsta eyja Thailands er við Andamaner hafið á vesturströnd Thailands. Phuket er mjög vinsæll ferðamannastaður sem er alveg skiljanlegt, þar sem þar er allt sem þarf til að skapa gott frí: falleg og fjölbreytt náttúra með háum fjöllum, þöktum frumskógi ásamt gróskumiklum ökrum með gúmmitrjám sem liggja þétt upp að litlum smábæjunum. En Phuket en þó þekktust fyrir margar og fallegar strendur sem eru allar á vesturhluta eyjunnar.
Kata og Karon Beach:
Kata og Karon standsvæðin bjóða uppá góða blöndu af vatnaíþróttum, veitingastöðum, verslunum og næturlífi án þess þó að vera eins líflegt og á Patong Beach. Það eru margir veitingastaðir á svæðinu, sem bjóða uppá allt frá skandinavískum réttum til hefðbundinna thailenskra rétta. Við Kata ströndina er mjög gott að vera með börn en við Karon ströndina geta verið miklar öldur yfir sumarmánuðina.
Patong Beach:
Patong Beach er vinaælasta ströndin á Phuket. Á svæðinu eru margir veitingastaðir, verslanir og mikið næturlíf. Patong Beach er uppáháld ungra ferðalanga og svæðið hentar þeim sem eru fyrir líf og fjör.
Verð FRÁ ISK 395.000,- *
Innifalið í verði
- Flug frá Íslandi til Phuket
- Keyrsla frá flugvelli í Phuket á hótel
- 7 x nætur á Orchidea Resort á Kata Beach
- 7 x morgunverðar hlaðboð
- 1 x Jóla dinner hlaðboð
- Keyrsla frá Hóteli á Hótel
- 7 nætur á Patong Beach Lodge
- 7 x morgunverðar hlaðboð
- 1 x Gamlárskvöld hlaðboð
- Keyrsla frá hóteli á flugvöll
- Flug frá Phuket til Íslands
- Allir skattar og gjöld
Ekki innifalið í verði
- Forfalla-ferða og slysatryggingar
- Sprautur og bólusetningar
- Þjóðfé fyrir leiðsögumenn og bílstjóra
- Drykkir á jóla og gamlárkvölds hlaðborði
*Verð pr. pers. í tveggjamanna herbergi